
Birgir Hilmarsson
Stofnandi Bowennám · leiðbeinandi
Ísland
Birgir Hilmarsson er lærður nuddari og hefur starfað við líkamsmeðferð og kennslu frá árinu 1996. Hann hefur víðtæka reynslu af Craniosacral meðferð, Bowen nálgun, sogæðameðferð og heildrænni líkamsvinnu og leggur áherslu á skynjun, einfaldleika og að vinna með svörun líkamans.
Fagleg kynning
Bakgrunnur
Birgir Hilmarsson er lærður nuddari og hefur starfað við líkamsmeðferð, kennslu og þróun námskeiða frá árinu 1996. Á þeim tíma hefur hann aflað sér víðtækrar þekkingar á sviði líkamsvinnu, snertimeðferðar og heildrænnar meðferðaraðferða og kennt fjölmörgum meðferðaraðilum hér á landi.
Upledger og cranio
Á árunum 1999–2009 kom Birgir að rekstri Upledger á Íslandi og skipulagði fjölda námskeiða á sviði Craniosacral meðferðar. Árið 2001 skipulagði hann fyrsta námskeiðið í vatnavinnu með Craniosacral nálgun hér á landi þar sem kennarar og þátttakendur tengdir Upledger komu víða að úr heiminum.
Birgir sótti fjölmörg námskeið hjá Upledger Institute, þar á meðal framhaldsnám í Craniosacral meðferð, og öðlaðist réttindi frá Upledger Institute til að kenna tveggja daga kynningarnámskeið í Upledger Craniosacral aðferðinni. Frá árinu 2005 hefur hann kennt þessi námskeið og kynnt aðferðina fyrir fjölmörgum meðferðaraðilum og áhugafólki um líkamsvinnu.
Vatnavinna og Bláa lónið
Á árunum 2003–2009 skipulagði hann og hafði umsjón með meðferðarprógrömmum í Bláa Lóninu þar sem unnið var með Craniosacral meðferð og vatnavinnu í sérstöku meðferðarumhverfi.
Chikly og önnur líkamsvinna
Birgir hefur einnig sótt sérhæft nám hjá Chikly Institute á sviði sogæðameðferðar, Heart Center Therapy og annarra sérhæfðra meðferðaraðferða. Þar að auki hefur hann sótt fjölmörg námskeið á sviði líkamsmeðferðar, bandvefsvinnu, skynjunar og heildrænnar nálgunar á heilsu og vellíðan.
Bowen og BBN
Á síðari árum hefur Birgir lagt sérstaka áherslu á Bowen nálgunina og þróun Bandvefslosunar með Bowen nálgun (BBN). Hann er stofnandi Bowennam.is sem hefur það markmið að kynna og miðla þekkingu á Bowen nálgun og skyldum aðferðum hér á landi.
Í samstarfi við breska sjúkraþjálfarann og kennarann Matt East hefur Birgir komið að þróun og uppbyggingu BBN námskeiðanna á Íslandi. BBN nálgunin byggir að stórum hluta á hugmyndafræði, greiningaraðferðum og klínískri nálgun Graham Pennington, sem hefur haft veruleg áhrif á þróun nútíma Bowen vinnu.
Í kennslu leggur Birgir áherslu á að þátttakendur þrói eigin skynjun, klíníska dómgreind og traust á því sem þeir finna undir höndunum. Hann trúir því að árangursrík líkamsvinna byggist ekki aðeins á tækni heldur einnig á hæfileikanum til að hlusta, fylgjast með og vinna með svörun líkamans.
Markmið hans sem kennara er að hjálpa þátttakendum að öðlast aukið öryggi, dýpri skilning og hagnýt verkfæri sem þeir geta nýtt strax í eigin starfi með skjólstæðingum.
Sérsvið og reynsla
Skynjun og líkamsvinna
- Lang reynsla í bodywork og kennslu
- Faglegur rammi og öryggi í námskeiðum
- Tengsl við íslenskt meðferðarstarf
Viltu læra hjá Birgir Hilmarsson?
Skoðaðu komandi námskeið og nánari upplýsingar um kennsluna.

