Kynningarnámskeið
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
Tveggja daga kynningarnámskeið þar sem unnið er með skynjun, létta snertingu og hlustun á líkamann. Þátttakendur læra að finna taktinn í líkamanum, vinna með hlustastöðvar og kynnast einföldum aðferðum úr höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.
- Dagsetning
- 26.–27. september 2026
- Staðsetning
- Heilsumiðstöðin, Ólafsvík
- Kennari
- Birgir Hilmarsson
- Verð
Snemmskráning til 19. september — 39.000 kr.
Eftir 19. september — 45.000 kr.

Helstu upplýsingar
Helstu upplýsingar
- Dagsetning
- 26.–27. september 2026
- Staðsetning
- Heilsumiðstöðin, Ólafsvík
- Kennari
- Birgir Hilmarsson
- Verð
- Snemmskráning til 19. september — 39.000 kr. Eftir 19. september — 45.000 kr.
- Lengd
- 2 dagar
- Flokkur
- Staðnám
Um námskeiðið
Á þessu tveggja daga kynningarnámskeiði kynnumst við grunnhugsun höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðar með áherslu á skynjun, snertingu og hæfni til að hlusta á það sem gerist í líkamanum.
Við byrjum á því að þjálfa létta snertingu og læra að finna taktinn á eigin hátt. Þaðan vinnum við áfram með hlustastöðvar á mismunandi stöðum líkamans og skoðum hvernig takturinn getur breyst frá einum stað til annars.
Á námskeiðinu kynnumst við einnig stöðvun taktsins, þverhimnulosun, vinnu með mænuslíður, orkubeitingartækni og því hvernig skyndilegar breytingar eða stopp geta komið fram meðan á vinnunni stendur.
Við skynjum og finnum sama fyrirbærið á mismunandi hátt. Á námskeiðinu fær hver þátttakandi svigrúm til að þróa sína eigin skynjun, læra að þekkja það sem hann finnur og treysta því.
Líkaminn leiðir. Hendurnar fylgja.
Sama fyrirbærið getur birst okkur á ólíkan hátt. Lærðu að þekkja og treysta því sem þú finnur.
Upplýsingar
Hagnýtar upplýsingar
Yfirlit yfir það sem gagnast þér áður en þú mætir — nákvæmar upplýsingar fyrir valið námskeið koma í staðfestingu.
- Námskeiðslengd
- 26.–27. september 2026
- Staðsetning
- Heilsumiðstöðin, Ólafsvík
- Tungumál
- Íslenska
Tengd námskeið
Önnur námskeið í sama faglega ramma.




