Bowennám
Tom Bowen – maðurinn á bak við Bowen-nálgunina
Tom Bowen er maðurinn sem Bowen-nálgunin er kennd við og sú nálgun sem í dag er notuð víða um heim á rætur sínar að rekja til hans klínísku vinnu í Ástralíu á tuttugustu öld. Þrát…
Tom Bowen – maðurinn á bak við Bowen-nálgunina
Tom Bowen er maðurinn sem Bowen-nálgunin er kennd við og sú nálgun sem í dag er notuð víða um heim á rætur sínar að rekja til hans klínísku vinnu í Ástralíu á tuttugustu öld. Þrátt fyrir að hafa ekki haft hefðbundna menntun í heilbrigðisgreinum þróaði hann með sér aðferð sem vakti mikla athygli og leitaði fjöldi fólks til hans vegna ýmissa líkamlegra vandamála.
Margir sem kynnast Bowen-nálguninni spyrja fljótlega sömu spurningar: hver var Tom Bowen og hvernig varð þessi nálgun til?
Tom Bowen starfaði í Geelong í Ástralíu og byggði vinnu sína fyrst og fremst á verklegri reynslu, nákvæmri athugun og næmni fyrir því hvernig líkaminn bregst við snertingu. Hann var þekktur fyrir að vinna einfalt og markvisst, en á sama tíma með mikilli athygli á svörun líkamans.
Í frásögnum þeirra sem fylgdust með starfi hans kemur fram að hann hafi unnið með fáar og skýrar snertingar á ákveðnum svæðum líkamans. Eftir slíkar hreyfingar gaf hann líkamanum oft rými áður en hann hélt áfram. Vinnan byggðist ekki á flóknum kerfum eða löngum meðferðarferlum, heldur frekar á því að fylgjast með og bregðast við því sem líkaminn sýndi hverju sinni.
Tom Bowen kenndi ekki aðferðina í formlegu kennslukerfi og skráði hana ekki niður á skipulegan hátt. Nálgun hans þróaðist í gegnum daglegt klínískt starf og virðist hafa byggst á stöðugri athugun á því hvernig líkaminn bregst við snertingu og hreyfingu. Þessi einfaldleiki og áhersla á svörun líkamans er eitt af því sem síðar varð einkennandi fyrir Bowen-nálgunina.
Talið er að Bowen hafi á sínum tíma sótt sér innblástur víða og haft samskipti við aðra sem unnu með líkamsvinnu. Þar má nefna áhrif frá aðferðum á borð við shiatsu, nálastungum og svokölluðum „flick“ hreyfingum, ásamt fleiri nálgunum þar sem unnið er með snertingu og örvun. Slík áhrif benda til þess að hann hafi verið opinn fyrir því að læra og þróa eigin skilning á líkamanum út frá reynslu sinni, fremur en að fylgja einu ákveðnu kerfi.
Í starfi Bowens kemur einnig fram skýr sýn á líkamann sem heild. Einkenni á einum stað voru ekki endilega meðhöndluð einangrað, heldur skoðuð í samhengi við spennu og álag annars staðar í líkamanum. Þessi hugsun er í dag vel þekkt í nútímalegri líkamsvinnu þar sem bandvefur, taugakerfi og hreyfimynstur eru skilin sem tengt kerfi.
Eftir að Tom Bowen lést héldu þeir sem höfðu fylgst með starfi hans áfram að vinna með svipaðar aðferðir. Með tímanum var reynt að skrá og skipuleggja það sem þeir höfðu lært og þannig urðu til mismunandi kennslukerfi sem byggja á þessari vinnu. Af þeim sökum hefur Bowen-nálgun þróast á ólíkan hátt eftir því hvernig meðferðaraðilar og kennarar hafa túlkað og miðlað henni áfram.
Í námi í bandvefslosun með Bowen-nálgun er byggt á þessum grunni, en jafnframt lögð sérstök áhersla á skilning á bandvef, spennumynstri og samspili líkamans. Markmiðið er ekki eingöngu að fylgja fyrirfram ákveðnum röðum hreyfinga, heldur að þróa næmni fyrir því hvernig líkaminn bregst við snertingu og hvar gagnlegt er að vinna hverju sinni.
Í þessari nálgun er oft talað um að minna geti verið meira. Fáar og nákvæmar hreyfingar geta stundum gefið líkamanum það áreiti sem hann þarf til að vinna áfram úr sjálfur. Slík nálgun krefst athygli og klínískrar dómgreindar, en getur einnig gert meðferðina einfaldari og markvissari.
Lesa einnig
Tengdar greinar
Frekari lesning í sama faglega ramma.
Saga og uppruni
Saga Bowen meðferðarinnar
Saga Bowen meðferðar á rætur sínar í klínísku starfi Tom Bowens í Geelong — einfaldleiki, næmni og lifandi klínískt ferli sem síðan varð kennslukerfi.
Klínísk hugsun
Kynning á BBN nálguninni
Stutt yfirlit yfir Bandvefslosun með Bowen nálgun, öryggi og hvernig námið er skipulagt.
Námskeið
Tengd námskeið
Viltu fara dýpra? Námskeið í bandvefslosun með Bowen nálgun — verkleg æfing og skýr fagleg staðla.
Viltu dýpka þekkinguna?
Skoðaðu námskeið í bandvefslosun með Bowen nálgun og tengdum fræðum.
