Staðnám
Body Mind Stress Control (BMS) með Sjra Bleylevens
Tveggja daga námskeið í meðvitaðri snertingu, líkamsvitund og orkuflæði
- Dagsetning
- 17.–18. október 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
- Kennari
- Sjra Bleylevens
- Verð
- 75.000 kr.

Helstu upplýsingar
Helstu upplýsingar
- Dagsetning
- 17.–18. október 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
- Kennari
- Sjra Bleylevens
- Verð
- 75.000 kr.
- Lengd
- 2 dagar
- Flokkur
- Staðnám
Um námskeiðið
Á þessu tveggja daga námskeiði leiðir Sjra Bleylevens þátttakendur inn í Body Mind Stress Control (BMS), heildræna nálgun sem hann hefur þróað í gegnum áratuga starf við líkamsvinnu, kennslu og rannsóknir á tengslum líkama, huga og orkukerfa.
Í BMS er lögð sérstök áhersla á meðvitaða snertingu, næmni handanna og hæfileikann til að skynja viðbrögð líkamans. Unnið er með líkamann sem heild og meðal annars skoðuð tengsl líffæra, bandvefs, spennumynstra og orkuflæðis.
Nálgun Sjra sækir meðal annars innblástur í Chi Nei Tsang, Nuad Thai og taóískar og búddískar hefðir. Kennslan er bæði fræðileg og verkleg og þátttakendur fá tækifæri til að æfa aðferðirnar undir leiðsögn Sjra.
Áherslan er ekki eingöngu á að læra ákveðnar aðferðir heldur einnig að þróa skynjun, nærveru og gæði snertingarinnar – að læra að „hlusta með höndunum“ og verða næmari fyrir því sem líkaminn er að tjá.
Hvað verður kennt • Orkulíffærafræði og orkukerfi líkamans • Grunnatriði Chi Nei Tsang og Nuad Thai • Tengsl líffæra, tilfinninga og líkamlegrar upplifunar • Vinna með spennusvæði og viðbragðssvæði líkamans • Meðvituð snerting og þróun næmni í höndum • Hvernig hægt er að „hlusta með höndunum“ og fylgja viðbrögðum líkamans • Aðferðir sem miða að aukinni slökun, hreyfanleika og jafnvægi • Hvernig samþætta má þessa nálgun við aðra líkams- og meðferðarvinnu
Um kennarann Sjra Bleylevens hefur starfað við líkamsvinnu og kennslu í meira en hálfa öld. Í gegnum árin hefur hann þróað BMS út frá eigin reynslu og rannsóknum ásamt áhrifum frá ólíkum austrænum hefðum. Kennsla hans einkennist af nærveru, næmni og áherslu á gæði snertingarinnar. Hann leiðir þátttakendur í að þróa eigin skynjun og læra að „hlusta með höndunum“.
Fyrir hverja Námskeiðið hentar meðal annars: • nuddara • líkamsmeðferðaraðilum • orkumeðferðaraðilum • jóga-, öndunar- og hugleiðslukennurum • öðrum sem hafa áhuga á líkamsvitund, snertingu og heildrænni líkamsvinnu
Engar sérstakar forkröfur eru gerðar.
Hagnýtar upplýsingar Dagsetning: 17.–18. október 2026 Kennslutími: 09:00–18:00 bæði dagana Staðsetning: Bíldshöfði 16, 2. hæð, Reykjavík Verð: 70.000 kr.
Upplýsingar
Hagnýtar upplýsingar
Yfirlit yfir það sem gagnast þér áður en þú mætir — nákvæmar upplýsingar fyrir valið námskeið koma í staðfestingu.
- Námskeiðslengd
- 17.–18. október 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
Tengd námskeið
Önnur námskeið í sama faglega ramma.



